sagan okkar
Gamla búðin var byggð árið 1841
Af Matthíasi Jónssyni Mathiesen kaupmanni, syðra húsið byggði hann ári seinna. Bæði húsin standa enn í sinni upprunalegu mynd í húsaþyrpingu Víkingaþorpsins og kallast í daglegu tali Fjaran eða Fjörukráin. Í gegnum tíðina hefur verið margvíslegur rekstur í þessum gömlu húsum eins og krambúð, verslun, pakkhús, smiðja, seglasaumur, fyrsta kennslan í stýrimannafræðum, hesthús, heygeymsla og lyfjaverslun.
Fyrri hluta síðustu aldar tengdist Gamla búðin einnig útgerð hér í Hafnarfirði sem síðan varð grunnur að blómlegri togaraútgerð og uppbyggingu bæjarins. Þann 7. febrúar 1985 samþykkti bæjarráð Hafnarfjarðar að láta rífa húsið að fengnu samþykki byggingarnefndar. Byggingarnefnd sendi málið til Húsafriðunarnefndar sem mælti eindregið gegn því að húsið yrði rifið. Um svipað leyti seldi bæjarsjóður þeim Viktori Strange og Harrý Hólmgeirssyni húsið. Þeir endurbyggðu húsið og lauk því verki í desember 1986. Sama ár opnuðu þeir, með glæsibrag, veitingahúsið Fjöruna í húsinu.
Árið 1990 seldu þeir Jóhannesi Viðari Bjarnasyni reksturinn sem breytti nafninu í Fjörukráin og opnaði staðinn eftir breytingar þann 10. maí sama ár. Hann byrjaði með ýmsar nýjungar sem hvorki höfðu verið áberandi í veitingarekstri hér í Hafnarfirði né annars staðar á landinu. Jóhannes byrjaði að tengja saman söng og matargerðarlist og var með hina ýmsu daga tengda mismunandi þjóðlöndum. Hann klæddi þjóna, söngvara og hljómlistarmenn í þjóðbúninga viðkomandi landa. Meðal þeirra daga sem hann var með voru franskir dagar, svissneskir, austurrískir, danskir, rússneskir, egypskir, færeyskir og grænlenskir dagar. Ýmist komu erlendir listamenn að utan til að taka þátt í þessum dögum eða þeir voru búsettir hér á landi. Af þessu má sjá að aragrúi af erlendum listamönnum hefur heimsótt Fjörukrána í gegnum tíðina, svo ekki sé talað um þá íslensku söngvara og hljómlistarmenn sem skemmt hafa gestum í víkingaveislum allt fram á þennan dag.
Ári síðar, eða 10. maí 1991, byrjuðu víkingaveislurnar í tjaldi sem reist var sunnan við Fjörukrána (Gömlu búðina). Þessi dagsetning, 10. maí, varð síðan að nokkurs konar kynningardegi fyrir þær nýjungar sem komu fram árlega næstu árin þar á eftir. Þennan dag hafa verið haldnar margar veglegar veislur fyrir velunnara staðarins til að kynna nýbreytni í rekstrinum. Þannig hefur staðurinn stækkað stig af stigi, Fjörukráin sem upphaflega tók 60 manns í sæti hefur nú sæti fyrir 350 gesti. Reksturinn hefur verið byggður upp eftir efnum og aðstæðum hverju sinni og smátt og smátt hefur þetta byggst hvað á eftir öðru. Þegar hofið var byggt voru ýmsir ósáttir við það og varð um það talsverð umræða í blöðum og á öðrum stöðum, en hofið var byggt og stendur enn og er orðið eitt af aðalkennileitum Hafnarfjarðar.
Einnig var tekin upp sú nýjung að fara í skemmti- og hvalaskoðunarferðir og voru fest kaup á skipi sem var nefnt Fjörunesið. Því miður var þetta ekki rétti tíminn fyrir þann rekstur því hvalaskoðun var ekki komin í „tísku“ á þessum tíma og vínveitingar voru ekki leyfðar um borð í skipinu. Þessi rekstur lagðist því af eftir tvö ár. Segja má að þarna hafi tímasetningin ekki verið rétt því að nokkrum árum seinna urðu skemmti- og hvalaskoðunarferðir að blómlegum rekstri.
Vélsmiðja Hafnarfjarðar bættist síðar í reksturinn og var henni breytt í gistihús sem nefnt var Vestnorden gistihús. Herbergin voru merkt og settar voru inn á þau myndir frá ýmsum merkum stöðum frænda okkar og nágranna í Færeyjum og á Grænlandi. Að sjálfsögðu
var íslenskt handverk haft í hávegum þar líka. Á neðri hæð hússins var opnað Vestnorden Kulturhus með vinnuaðstöðu fyrir handverksfólk og verslun sem seldi afurðir þess.
Eins og með útgerðina bar þetta sig ekki og rekstrinum var breytt í vænlegri rekstur og gistihúsinu breytt í hótel með fjölgun herbergja. Sölubúðinni var breytt í morgunverðarsal og hellir var byggður við til að stækka þann sal. Nú eru 42 herbergi á hótelinu, vel útbúin með öllum þeim þægindum sem hótelgestir þurfa. Ýmislegt hefur því verið reynt, sumt tekist ágætlega en annað ekki eins og gengur og gerist í rekstri.
Á árum áður var Fjörukráin virk í því að fara í víking út fyrir landsteinana og um árabil var unnið að landkynningum í hinum ýmsu borgum Evrópu. Aðallega voru þessar landkynningar unnar í samstarfi við Flugleiðir og Ferðamálaráð en einnig á eigin vegum. Reyndist þetta hin besta markaðssetning sem varð til þess að meginþorri þeirra útlendinga sem sóttu Ísland heim komu í víkingaveislur í Fjörukránni.
Jóhannes Viðar er alls ekki hættur og er að klára að stækka hótel Víking um helming og verður það tilbúið í maí 2026. Hótelið breytist þá í 4 stjörnu hótel.





