Um Fjörukrána

Fjörukráin í Hafnarfirði er lifandi sögustund í hjarta víkingabæjarins

Jóhannes Viðar Bjarnason hóf feril sinn í veitingabransanum sem þjónn á Naustinu og starfaði þar lengi. Hann segist hafa mótast af stemningu og innréttingum hins fornfræga staðar, þar sem áhugi hans á veitingarekstri kviknaði fyrir alvöru.


Árið 1990 tók hann stóra áhættu og keypti lítið og dalað veitingahús í fjörunni í Hafnarfirði. Á þeim tíma var nánast enginn ferðamaður í bænum og margir töldu kaupin hreint óráð. En Jóhannes sá tækifæri þar sem aðrir sáu vandamál. Hann hafði skýra sýn: að byggja upp áfangastað sem byði upp á upplifun, ekki bara mat.

Úr varð Fjörukráin. Með djörfum hugmyndum um víkingaþema, veislur og lifandi tengingu við íslenska sögu og menningu vakti staðurinn bæði furðu og efasemdir í fyrstu. Skipulagsyfirvöld skildu ekki áformin, en Jóhannes lét ekki deigan síga. Smám saman óx áhuginn, víkingaveislur og menningarkvöld urðu vinsæl og Fjörukráin þróaðist í einn þekktasta og mest sótta áfangastað ferðamanna á Íslandi.

Í kjölfarið bætti hann við hótelrekstri og opnaði Víkingahótelið, sem hefur verið stækkað í áföngum samhliða vaxandi ferðaþjónustu. Í dag er þar fjöldi herbergja og frekari uppbygging áformuð. Reksturinn hefur fest sig í sessi sem heildstæð upplifun þar sem gisting, matur og menning mætast.

Fjölskyldan hefur tekið virkan þátt í starfseminni og dætur hans starfa nú með honum við reksturinn. Auk Fjörukrárinnar og Víkingahótelsins rekur Jóhannes einnig Fisherman’s Village á Álftanesi.

Þrátt fyrir áratuga reynslu er drifkrafturinn sá sami og í upphafi. Fyrir Jóhannes er þetta ekki aðeins atvinnurekstur heldur lífsstarf – byggt á hugmyndaauðgi, elju og einlægri ástríðu fyrir íslenskri menningu og gestrisni. Hann horfir áfram veginn með bjartsýni og heldur áfram að láta hugmyndir verða að veruleika.

Íslenskur matur & lifandi tónlist

Í yfir tvo áratugi hefur Fjörukráin tekið á móti gestum víðsvegar að úr heiminum og boðið upp á ekta íslenskan mat, lifandi tónlist og notalega stemmingu þar sem allir eru velkomnir – hvort sem um ræðir rólegan kvöldverð eða skemmtilega samveru fram á nótt.


Hótel Víking býður upp á hlýlega gistingu í sögulegu umhverfi þar sem hvert herbergi hefur sinn einstaka karakter. Það er stutt í allt það besta sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða – sjávarsíðuna, listalíf, og náttúruna í kring.


Við erum stolt af því að halda í anda íslenskrar gestrisni og bjóða upp á upplifun sem sameinar menningu, mat og mannlegheit – rétt eins og í gamla daga.


Velkomin á Fjörukránna – þar sem sagan lifnar við.


Hótel Fjörukráin býður upp á hlýlega gistingu í sögulegu umhverfi þar sem hver herbergi hefur sinn einstaka karakter. Það er stutt í allt það besta sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða – sjávarsíðuna, listalíf, og náttúruna í kring.

Hlýlega gistingu í sögulegu umhverfi

Important information

Flybus upplýsingar

Flybus stoppar beint fyrir framan hótelið okkar og við erum fyrsti viðkomustaður frá flugvellinum, og síðasti viðkomustaður áður en haldið er uppá flugvöll. 

Innritun og útritun

Innritun: kl. 15:00
Útritun: kl. 11:00

Bílastæði:

Ókeypis bílastæði eru í boði fyrir gesti okkar fyrir aftan veitingastaðinn.

Við erum stolt af því að halda í anda íslenskrar gestrisni

Við erum stolt af því að halda í anda íslenskrar gestrisni og bjóða upp á upplifun sem sameinar menningu, mat og mannlegheit – rétt eins og í gamla daga.


Velkomin á Fjörukránna – þar sem sagan lifnar við.

Fjörukráin í gegnum árin


Safn greina og umfjöllunar úr fjölmiðlum sem varpa ljósi á sögu, fólk og hefðir Fjörukrárinnar frá upphafi.