Salir til leigu

Glæsilegir veislusalir, veitingastaður og gisting í hjarta Hafnarfjarðar

Fjaran veislusalur

35 manns

Strandgata 55, 220 Hafnarfjörður

Fjaran/Valhöll er opin fyrir matargesti alla daga frá kl. 18:00. Einnig opnum við fyrir hópa í hádeginu.

Húsið er byggt 1841 og er næstelsta hús Hafnarfjarðar og tekur um 35 manns í sæti á neðri hæð, þar er einnig kominn notalegur hornsófi og hátt borð með stólum.

Uppi er vinaleg setustofa og hlýlegt herbergi þar innaf með sæti fyrir 18 matargesti.

Hægt er að hafa innangengt af báðum hæðum yfir í Fjörugarðinn og því geta gestir Fjörunnar/Valhallar, notið alls þess sem Fjörugarðurinn hefur uppá að bjóða eða haft afgirt og verið útaf fyrir sig.

Fjaran/Valhöll er glæsilegur veitingastaður þar sem innréttingar og húsgögn eru gerð úr hundrað ára gömlum neftóbaks- og víntunnum.

Veggirnir á neðri hæðinni eru skreyttir með málverkum af Hafnarfirði og af veisluborði goðanna, beint á veggina af listamönnunum Lukas Gucio Gordon og Elísu Ósk Viðarsdóttur.

Notalegur og öðruvísi veitingastaður sem vert er að heimsækja aftur og aftur.

Freyjuhof veislusalur

60 manns

Strandgata 55, 220 Hafnarfjörður

Freyjuhof er einstaklega glæsilegur og notalegur veislusalur. Mjög hátt er til lofts og veggir og innviðir skreyttir útskurði og fallegum munum. Glæsilegur bar er í salnum fagurlega skorinn út.

Kerti og lýsing mynda afar hlýlega stemningu.

Salurinn tekur um 66 manns til borðs, en einnig er hægt að hafa hann sem hluta af veislu á allri efri hæð staðarins og rúmar þá samtals um 186 manns til borðs.

Boðið er uppá fjölbreyttan hópmatseðil, jólahlaðborð, þorrablót allt eftir tilefni.

Salurinn hentar mjög vel í árshátíðar, brúðkaupsveislur, afmæli, jólahlaðborð, þorrablót.

Einnig hefur salurinn verið vinsæll hjá fyrirtækjum og ferðaþjónustuaðilum.

Salurinn er aðeins boðinn með veitingum.

  • Mikil lofthæð og fagurlega skreyttur salur
  • Notaleg lýsing
  • Auðvelt að skapa góða stemningu í veislumi
  • Fjölbreyttur hópmatseðill
  • Árshátíðar, Þorrablót, jólahlaðborð

Fjörukráin efrihæð

80 manns

Strandgata 55, 220 Hafnarfjörður

Efrihæð Fjörukráarinnar er með aðstöðu fyrir allt að 186 manns. Innviðir og skreytingar á veggjum skapa mjög notalega stemningu. Þar af er Freyjuhof sem tekur 66 manns til borðs.

Boðið er uppá fjölbreyttan hópmatseðil, jólahlaðborð, þorrablót allt eftir tilefni.

Salurinn hentar mjög vel í árshátíðar, brúðkaupsveislur, afmæli, jólahlaðborð, þorrablót.

Einnig hefur salurinn verið vinsæll hjá fyrirtækjum og ferðaþjónustuaðilum.

Mögulegt er að fá lifandi tónlistaratriði við meðan á borðhaldi stendur.

Salurinn er aðeins boðinn með veitingum.

  • Fallegir og hlýlegir innviðir
  • Notaleg lýsing
  • Bar
  • Auðvelt að skapa góða stemningu í veislum
  • Fjölbreyttur hópmatseðill
  • Árshátíðar, Þorrablót, jólahlaðborð
  • Fyrirtækjaviðburðir

Fjörukráin neðrihæð

120 manns

Strandgata 55, 220 Hafnarfjörður

Jarðhæð Fjörukráarinnar er með aðstöðu fyrir allt að 122 manns við borð. Innviðir og skreytingar á veggjum skapa mjög notalega stemningu.