Bóka herbergi

Til að bóka gistingu eða senda fyrirspurn um gistingu 
  Smellið hér  

Vikingahátíðir

 

INVITATION TO THE VIKING MARKET IN HAFNARFJORDUR 2012

viking-1

Nú líður að því að 16. hátíðin verði sett og að vanda verður hún fjölbreytt, dágóður hópur erlendra víkinga kemur til okkar, sumir í sextánda skiptið auk þess sem stór hópur vina okkar Færeyinga lætur sig ekki vanta, auk þess verður einn besti handverksmaður Grænlands með okkur á hátíðinni. Einnig má geta þessa að Víkingahljómsveitin Krauka en meðlimir hennar eru frá öllum norðurlöndunum og forsprakki þeirra er okkar maður Guðjón Rudolf.

Sögumenn, götulistamenn, handverksmenn sem bæði höggva í steina og tré eða berja glóandi járn, bardagamenn og bogmenn, svo eitthvað sé nefnt. Víkingahópurinn  okkar Rimmugýgur og víkingahópurinn Hringhorni frá Akranesi, verða hér að vanda með sínar skemmtilegu bardaga og glímutök á hátíðinni og fjöldinn allur af víkingum víðsvegar af landinu hefur boðað komu sína hingað til okkar. Á þriðja hundrað víkingar verða á svæðinu þegar mest lætur og fjölhæfir eru þeir eins og sjá má af upptalningunni hér fyrir ofan.

Dansleikir eru fastir liðir hér meðan á hátíðinni stendur, Hjómsveitin Dans á Rósum, mun spila föstudags og laugardagskvöld en fimmtudags og sunnudagskvöld munu ýmsir víkingar sem á hátíðinni verða stíga á stokk og láta ljós sitt skína eins munu þeir hita upp fyrir dansleikina.

Í lokin vill ég þakka þeim sem stutt hafa þetta framtak í gegn um árin en lógóin þeirra eru hér, þeir hafa ekki brugðist og eru búnir að standa með okkur í gegn um öll árin, þeim verður seint fullþakkað.

Það er von mín að þessi hátíð eigi eftir að halda uppi merki víkinga og halda áfram að gleðja þá gesti sem á hátíðina koma.

Gleðilega Sólstöðuhátíð Víkinga.

 

 



viking-2Víkingahátíðin í Hafnarfirði er elsta, stærsta og mikilvægasta hátíð sinnar tegundar sem haldin er á Íslandi. Síðan 1995 hefur Hafnarfjörður verið leikvöllur víkinga sem hafa í gegn um tíðina sýnt flesta þætti menningar víkingaaldar, siglingar, handverk, matargerð, leiki, sagnalist, bogfimi, bardaga og tónlist. Hingað hafa komið og tekið þátt í því að heiðra minningu forfeðra okkar fjöldi listamanna hvaðanæva að úr Evrópu og Ameríku. Stundum hefur verið tilefni til að koma með óvænt innskot, stílbrot til að undirstrika enn frekar hvernig nútíminn og víkingar fortíðar geta verið saman í sátt og samlyndi og myndað sterka heild.

 









viking-11Allt frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að allt sé sem upprunalegast, að hátíðargestum finnist sem þeir hafi verið færðir þúsund ár aftur í tímann og þeir eins og fyrir einhvers konar kraftaverk séu staddir á sumarkaupstefnu. Skip frá útlöndum hefur komið til hafnar og verið tekið í naust, vörur bornar á land og kaupmenn hafa tekið upp varning sinn og stunda kaupskap. Það er mikið um dýrðir, tónlist, trúðleikar og dansmeyjar, mungát góð eins og segir í fornum bókum og borð svigna undan kræsingum. Síðan þegar allt virðist leika í lyndi kastast í kekki, menn berast á banaspjót og í góðsemi vega menn hver annan.


Á Víkingahátíðinni 2011 verður enn reynt að kynna til sögunnar nýja og ferska strauma, nýjar hetjur verða kallaðar til og reyndar ásamt gömlum kempum sem tryggir gestir hátíðarinnar þekkja. Alls má gera ráð fyrir að nú verði víkingar nær tvö til þrjú hundruð, íslenskir sem erlendir. Markaðurinn verður opinn alla hátíðardagana, frá klukkan 16.00 til 21.00.  Svo verða dansleikir flest kvöldin fram á morgun.






Fjörukráin
Strandgötu 55
220 Reykjavík | Hafnarfirði 

Borðapantanir
vikings@vikingvillage.is
Sími 565-1213

Hótelbókanir
booking@vikingvillage.is
Sími 565-1213

Vefhönnun: Hugsa Sér!