Fjörukráin gerir út "færanlegan" veitingastað sem hægt er að setja upp nær hvar sem er. Nú þegar höfum við sett hann upp bæði á Íslandi og í Evrópu, t.d. Þýskalandi.
Árið 2000 var haldin Víkinga- og Inuit hátið í Narsarsuaq í Grænlandi í samvinnu við Landafundanefnd Grænlands.
Víkingahátíð var haldin í Færeyjum á Ólafsvökunni sumarið 2001.
Tegundir:
- Konungsbúðir - átta til þrettán tjöld, höfuðtjald, tvö veitingatjöld og 160 til 260 sæti.
- Jarlsbúðir - fimm til átta tjöld, eitt til tvö veitingatjöld og 100 til 160 sæti.
- Berserkjabúðir - þrjú til fimm tjöld, eitt veitingatjald og 60 til 100 sæti.
- Útilegumannabúðir - tvö til þrjú tjöld, eitt veitingatjald og 40 til 60 sæti.