Finna á síðunni:

Jólahlaðborð

 

 

 

 

 

 

 

 

Fjörukráin er í hópi þjóðlegustu veitingastaða landsins og hefur í gegnum tíðina tengt veitingahúsamenningu við hinar ýmsar listgreinar. Hér hefur söngur verið í hávegum hafður og eru okkar söngvísu valkyrjur og víkingar orðin landsþekkt. Þann 20 nóvember breytast þau í rammíslenska jólasveina og bjóða þér gómsætar jólahrásir á glæsilegu jólahlaðborði með þjóðlegri og skemmtilegri jóladagskrá. Á undan borðhaldi býðst gestum að heimsækja Grýlu í helli sinn, fyrir utan Fjörukrána og býður hún upp á Grýluglögg, jafnframt er hún veislustjóri. Hlaðborðið svignar undan góðgætinu og rammíslensk jólastemmingin svíkur engan.

Meðal köldu réttana má finna hangikjöt, jólaskinka, fjallapate, sjávarréttapate, kalkúnabringu og 3 tegundir af síld.   Heitir réttir eru meðal annars hreindýrabollur, purusteik og lambalæri.

Við erum með Jólahlaðborð alla Föstudaga og Laugardaga, og tökum á móti hópum eftir pöntunum aðra daga.

Hljómsveit Rúnars Þórs mun til skiptis við hljómsveitina Dans á Rósum frá Vestmannaeyjum spila fyrir dansi að borðhaldi loknu.

Verð á hlaðborði með Grýluglöggi er 6,800, jólin 2009

Rúnar Þór og hljómsveit spilar fyrir dansi helgarnar 20-21 nov / 4-5 des / 18-19 des

Sérstakur gestur Rúnars verður Gylfi Ægisson og mun hann koma tvisvar fram þau kvöld sem Rúnar og hljómsveit spila. Hér að neðan má sjá þá félaga á æfingu.

 

Dans Á Rósum Spilar fyrir dansi helgarnar 27-28 nov  og 11-12 des

 

Hljómsveitin Dans Á Rósum


FJÖRUKRÁIN - STRANDGÖTU 55, 220 HAFNARFJÖRÐUR, Kt. 630490-1119, VSK No. 25393
Sími 565 1213 -Fax 565 1891 - www.fjorukrain.is - booking@vikingvillage.is