Velkomin á Hótel Víking.
Á Hótel Víking eru 42 vel búin og glæsileg herbergi með sturtu, salerni, kaffivél, hárþurrku, sjónvarpi og þráðlausu interneti. Í anddyri hótelsins er tölva með aðgang að netinu til afnota fyrir gesti. Vestnorrænt þema er á bak við hönnun herbergjanna í efri hæðinni og í neðri hæð eru herbergin í anda Víkinga. Nýlega var tekinn í notkun heitur pottur í glæsilegum bakgarði hótelsins. Gestir hótelsins hafa frjálsan aðgang að pottinum og geta þar slakað á í rólegu og rómantísku umhverfi eftir annir dagsins. Hægt er að leigja baðsloppa á hótelinu.
Hótelið er með tólf eins manns herbergjum, tuttugu og eitt þeirra eru tveggja manna, átta eru þriggja manna og eitt er fyrir fjóra.
Á hótelinu eru þrjár svítur, glæsilega útbúnar.
Veitingar:
- Morgunmatur er innifalinn í herbergjaverði og er hann framreiddur frá kl. 07.30. - 10.00. á glæsilegu morgunverðarhlaðborði.
- Í Víking Village - Fjörukránni eru tveir veitingastaðir - Fjaran og Fjörugarðurinn sem eru opnir daglega.
Afþreying:
- Suðurbæjarlaug er í göngufæri við hótelið - 5 mínútna gangur.
- Hestaferðir er hægt að fara í hjá Íshestum . Það er um það bil 5 mínútna akstur frá hótelinu til Íshesta.
- Álfabyggðin í Hellisgerði er hér í nágrenninu. Uppýsingar um gönguferðir um álfabyggðina eru veittar í Upplýsingamiðstöð ferðamanna.
- Upplýsingamiðstöð ferðamanna er staðsett í Ráðhúsi bæjarins við Strandgötu.
- Verslunarmiðstöðin "Fjörður" er staðsett í miðbænum u.þ.b 5 mínútna gangur auk þess sem finna má ýmsar sérverslanir í göngugötunni þar hjá.
Allar frekari upplýsingar eru góðfúslega veittar í mótttöku hótelsins eða á veitingastaðnum.
Verðskrá:
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Vinsamlega smellið hér til að bóka í öruggu umhverfi.
Fjögur herbergi á hótelinu númer 14, 15, 25, 26 eru "minisvítur" og bætast kr. 2.500 við aukalega ef gisti er á þeim, hvort sem um er að ræða eins manns eða tveggja manna herbergi.
Herbergjapöntun:
Sími: +354 565 12 13
Fax: +354 565 18 91
booking@vikingvillage.is