
Nú hefur verið opnað menningar- og fræðslusetur í nánum tengslum við okkar ágætu nábúa Færeyinga og Grænlendinga og að sjálfsögðu verður þáttur okkar Íslendinga einnig áberandi.
Á fyrstu hæðinni verður á boðstólnum úrval vandaðs handverks eins og útskornir munir og aðrir áhugaverðir hlutir.
Við erum að skipuleggja næstu 2 árin sem framundan eru og ættum við þá að vera búin að fullvinna þessa hugmynd og hún komin í fastar skorður. Einn stærsti hlutinn á ári hverju verða fastir þættir eins og árlegir Grænlenskir og Færeyskir dagar hér á staðnum , einnig er verið að vinna að hugmynd að gera einhverjar aðrar uppákomur í framtíðinni og vera með þær í Færeyjum og Grænlandi, t.d íslenska daga í samvinnu við aðila í Grænlandi eða Færeyjum.
Hugsanlega gæti komið fleiri þjóðir að