Ný og breytt Fjaran okkar – Valhöll Víkinga.
Á haustdögum var ákveðið að ráðast í breytingar á Fjörunni og færa hana meira í stílinn við Víkingaþemað og voru fengnir til verksins laghentir menn og hugmyndaríkir. Þar fremstur í flokki var sjálfur Fjörugoðinn og eigandinn Jóhannes Viðar Bjarnason. Yfir hundrað ára gamlar neftóbakstunnur höfðu rekið á fjörur hans og eru þær ásamt gömlum vínámum, innréttingar og húsgögn Fjörunnar eða Valhallar, eins og ein hugmyndin er með nýtt nafn á Fjörunni.
Jóhannes Viðar fékk til liðs við sig fyrir nokkrum árum, ungan listamann frá Póllandi, Lukas Gucio Gordon að nafni, til að mála beint á veggi Fjörunnar myndir af Hafnarfirði og nú bættist við mynd af veisluborði Goðanna eftir Elísu Ósk Viðarsdóttur, sem setur glæsilegan svip á salinn.
Húsið sjálft sem gekk undir nafninu Gamla búðin, var byggt árið 1841 af Matthíasi Jónssyni Mathiesen og er næstelsta hús Hafnarfjarðar. Syðra húsið byggði hann ári seinna, bæði þessi hús standa enn í húsaþyrpingu Víkingaþorpsins í sinni upprunalegu mynd.
Í gegnum tíðina hefur margvíslegur rekstur verið í þessum gömlu húsum, eins og krambúð, verslun, pakkhús, smiðja og seglsaumur svo eitthvað sé nefnt. En frá árinu 1986 hefur Gamla búðin eða Fjaran, gengt hlutverki veitingahúss með góðum orðstír. Frá árinu 1990 þegar Jóhannes Viðar keypti reksturinn hóf hann strax handa með ýmsar nýjungar og uppákomur, eins og frægt er orðið.
Innangengt er nú á milli Fjörugarðsins og Fjörunnar, bæði á neðri hæð húsanna og eins þeirri efri. Þetta gefur gestum Fjörunnar möguleika á að njóta alls sem Fjörugarðurinn býður uppá, en vera samt útaf fyrir sig. Neðri hæðin tekur um 36 manns í sæti, uppi undir stúðinni, er setutofan komin í tunnustílinn. Lítið og hlýlegt herbergi með sæti fyrir 18 matargesti, er fyrir innan setustofuna og er upplagt fyrir litla hópa sem vilja vera útaf fyrir sig.