| Gamla Búðin |
|
 |
Gamla búðin var byggð árið 1841 af Matthíasi Jónssyni Mathiesen kaupmanni, syðra húsið byggði hann ári seinna, bæði þessi hús standa enn í húsaþyrpingu Víkingþorpsins í sinni upprunarlegu mynd og kallast í daglegu tali Fjaran eða Fjörukrain.
|
| Í gegn um tíðina hefur margvís rekstur verið í þessum gömlu húsum eins og krambúð,versalun,pakkhús,smiðja,seglasaumur,fyrsta kennsla í stýrimannafræðum,hesthús og heygeymsla,lyfjaverslun, svo eitthvað sé nefnt. Einnig tengdist Gamla búðin firri part síðustu aldar togaraútgerð hér í Hafnarfirði sem síðan var grunnur að blómlegri togaraútgerð og uppbyggingu bæjarins.
|

|
 |
Þann 7. Febrúar 1985 samþykkti bæjarráð að láta rífa húsið að fengnu samþykki byggingarnefndar. Sendi bygginganefnd málið til húsafriðunarnefndar sem mælti eindregið gegn því að húsið yrði rifið. Um svipað leyti seldi bæjarsjóður húsið þeim Viktori Strange og Harrý Hólmgeirssyni, þeir endurbyggðu húsið og því lauk í desember 1986 og opnðu það ár sem veitingahúsið Fjarn með glæsibrag. |
| Árið 1990 seldu þeir reksturinn til Jónhannesar Viðars Bjarnasonar sem breytti nafninu strax í Fjörukrána og opnaði staðinn eftir breytingar 10 may sama ár, um leið og hann byrjaði með ýmsar nýjungar sem ekki höfðu verið mikið áberandi í veitingarekstri hér í Hafnarfirði né annarstaðar áður. |
 |
 |
Hann byrjaði að tengja söng og matargerðarlist saman og var með hinar ýmsu daga frá himum og þessum þjóðlöndum, klæddi þjóna, söngvara sem og hljómlistarmenn í viðkomandi þjóðbúninga þar sem þeir áttu við, meðal þeirra daga sem hann var með voru Franskir dagar, Svissneskir, Danskir ,Rúsnesir,Egypskir ,Færeyskir og Grænlenskir, þannig að aragrúi af erlendum listamönnum hafða heimsótt Fjörukránna í gegn um tíðina, svo ekki sé talað um þá íslensku söng og hljómlistarmenn, sem skemmt hafa gestum. |
| Ári seinna eða 1991 byrjuðu víkingaveislunar í tjaldi sem reist var sunnan við Fjörukrána(Gömlu búðina) og en var haldið sig við 10 mai sem seinna var nokkurskonar kynningardagur á þeim nýjungum sem komu upp á hverju ári næstu árin og var haldin þann dag margar vegllegar veislur fyrir velunnara staðarins næstu árin í því tilefni að kynna þá nýbreytni í rekstrinum . |
 |
 |
Þannig stig af stigi hefhur þetta allt stækkað, Fjörukraín sem byrjaði með 60 sæti hefur nú um 500 sæti fyrir gesti í þeim húsakynnum sem nú eru 2 samhliða veitingastaðir Fjaran og Fjörugarðurinn og samheitið fyrir þá er Fjörukráin, og síðan Hótel Víking. |
| Eins var farið í skemmti og hvalaskoðunarferðir, skip keypt og nefnt Fjörunesið, bryggja byggð fyrir framan Fjörukrána, en því miður var þetta ekki rétti tíminn fyrir þennan rekstur því hvalaskoðun var ekki komin í tísku þá og engvar vínveitingar leifðar um borð í skipinu þannig að eftir 2 ár lagðist þessi rekstur niður þannig að það má segja að þarna var ekki tímasetning rétt því þetta varð blómlegur rekstur nokkrum árum seinna. |
 |
 |
Vélsmiðja Hafnarfjarðar bættist síðan í reksturinn og henni breitt í gistihús sem nefnt var Vestnorden gistihús, herbergin voru merkt og myndir settar inn á þau frá merkum stöðum hjá frændum og og nágrönum í Færeyjum og Grænlandi, að sjálfsöðu var íslenskt hanverk í hávegum haft þar líka. Einnig var opnað á neðri hæð húsins Vestnorden Kulturhús, með vinnuaðstöðu fyrir handverksmenn og verslun sem seldi síðan afurðir þeirra |
| Enn eins og með útgerðina bar þetta sig ekki og reksturinum breytt í þann rekstur sem vænlegri var og gistihúsinu breitt í hótel með fjölgun herbergja og sölubúðinni var breytt í morgunverðarsal og hellir byggður við til að stækka þann sal, og nú eru á hótelinu 42 vel útbúin þeim þægindum sem gestir þurfa á hóteli, þannig að ýmislegt hefur verið reinnt, summt tekist ágætlega en annað ekki eins og gengur og gerist í rekstri. |
 |
 |
Fjörukráin var vel virk á árum áður að fara í víking erlendis, um árabil var unnið að landkynningum í hinum ýmsu stórborgum Evrópu mest með Flugleiðum og Ferðamálaráði, eða þá á eigin vegum. Reyndist þetta vera sá grunnur að því að megin þorri þeirra útlendinga sem sóttu Ísland heim komu við í Fjörukrana
Johannes Vidar Bjarnason
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Last Updated on Sunday, 06 June 2010 23:57 |