|
Fjörukráin er í hópi þjóðlegustu veitingastaða landsins og hefur í gegnum tíðina tengt veitingahúsamenningu við hinar ýmsar listgreinar. Hér hefur söngur verið í hávegum hafður og eru okkar söngvísu valkyrjur og víkingar orðin landsþekkt. Þann 20 nóvember breytast þau í rammíslenska jólasveina og bjóða þér gómsætar jólahrásir á glæsilegu jólahlaðborði með þjóðlegri og skemmtilegri jóladagskrá. Á undan borðhaldi býðst gestum að heimsækja Grýlu í helli sinn, fyrir utan Fjörukrána og býður hún upp á Grýluglögg, jafnframt er hún veislustjóri. Hlaðborðið svignar undan góðgætinu og rammíslensk jólastemmingin svíkur engan.
|
 |
 |
Meðal köldu réttana má finna hangikjöt, jólaskinka, fjallapate, sjávarréttapate, kalkúnabringu og 3 tegundir af síld. Heitir réttir eru meðal annars hreindýrabollur, purusteik og lambalæri.
Við erum með Jólahlaðborð alla Föstudaga og Laugardaga, og tökum á móti hópum eftir pöntunum aðra daga.
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
|
Last Updated on Thursday, 02 September 2010 10:31 |